 |
Gleðileg jól og farsælt komandi ár! |
|
Mynd/ Stefán Snæbjörnsson
Stilltir og prúðir dvergschnauzer-hundar njóta sumarblíðunnar í ágúst 2010.
|
|
Hvolpar
Gjóska er 4 mánaða glæsilegur hvolpur. Hún leitar að góðu heimili.
|
Helguhlíðar Líf, þriggja mánða og bráðefnilegur hvolpur undan Grímu frá Ólafsvöllum og Sasquehanna Grog, sem bæði eru meistarar. Líf ætlar að búa hjá okkur í Helguhlíð. |
Átta sprækir svart og silfur hvolpar komu í heiminn 2. apríl 2010, fimm tíkur og þrir rakkar. Foreldrar eru meistararnir Isch Gríma frá Ólafsvöllum og Plch Isch Sasquehanna Grog.
Hér eru myndir af hvolpunum.
Við óskum öllum farsældar á nýju ári!
Hvolparnir eru allir komnir til nýrra eigenda sinna.

Mynd/Þorsteinn Kristinsson
Hvolpar undan meisturum
Fimm gullfallegir og heilbrigðir svart-silfur hvolpar komu í heiminn 8. september 2009. Foreldrar eru meistararnir, Isch Díana frá Ólafsvöllum og Plch Isch Sasquehanna (FCI) Grog, sem kallaður er Grojack.
Alls komu fjórar tíkur og einn rakki og heilsast þeim öllum vel. Myndir af hvolpunum
|
|
| Isch Díana frá Ólafsvöllum |
Plch Isch Sasquehanna (FCI) Grog |
|
Gjöf frá Ólafsvöllum
 |
Rauðstjörnótt merfolald bættist í hópinn sumarið 2009. Myndir hér. |
Afmælissýning HRFÍ í ágúst 2009

|
Gríma frá Ólafsvöllum fékk þriðja meistarastigið sitt á afmælissýningu HRFÍ í ágúst 2009 og öðlaðist þar með nafnbótina Íslenskur meistari. Fimm mánaða sonur hennar, Pjakkur litli, stóð sig líka eins og hetja og var besti hvolpur tegundar í yngri hvolpaflokki. |
 |
Helguhlíðar Pjakkur kom, sá og sigraði í flokki yngri hvolpa, á aldrinum 4 - 6 mánaða og er hér stoltur ásamt rósettunni sinni og verðlaunagrip. |
 |
Helguhlíðar Pjakkur var í 4. sæti í úrslitakeppni hvolpa á aldrinum 4 - 6 mánaða, á afmælissýningu HRFÍ. Hann er hér með eiganda sínum, Kristni Halldórssyni. |
|
Helguhlíðar Skotta var fánaberi á þjóðhátíð á Seltjarnarnesi 17. júní, þar sem nokkrir hundar sýndu listir sínar að beiðni bæjaryfirvalda. Þessi fallega mynd af Skottu var síðan notuð í auglýsingu fyrir 40 ára afmæli Hundaræktarfélags Íslands. |
Mynd/Pétur Alan Guðmundsson |
|
Helguhlíðar Skotta náði frábærum árangri á veiðiprófi í maí 2009.
|
Við tókum þátt í veiðiprófi Írsk setterdeildarinnar með alla hundana okkar 1. - 3. maí 2009. Helguhlíðar Skotta náði frábærum árangri og var í 2. sæti í keppnisflokki.
Mjög virtur írskur dómari, Raymond O’Dwyer, dæmdi, en hann hefur dæmt veiðipróf víða um heim, meðal annars stór próf í Noregi, auk þess sem hann dæmdi á Evrópumótinu í Frakklandi fyrr á þessu ári.
Aðstæður í prófinu voru frekar erfiðar, veðrið rysjótt og fuglinn órólegur. Gömlu hundarnir, Trix 11 ára og Sparta 10 ára unnu vel, en náðu ekki að nýta þau færi sem gáfust og hið sama má segja um unglinginn í hópnum, Mína, sem nú er 10 mánaða.
Helguhlíðar Skotta, sem er sjö ára, nýtti færin mun betur. Hún tók þátt á laugardag og sunnudag. Fyrri daginn var hún í opnum flokki, þar sem hún náði þriðju einkunn, en daginn eftir bætti hún sig verulega og varð önnur í keppnisflokki. Myndir eru hér.
|

Sex sprækir hvolpar komu í heiminn 27. mars 2009, fimm rakkar og ein tík.
Foreldrar: ISCH Hassanhill's Cover Me (Bónó) x Gríma frá Ólafsvöllum
Feldlitur: Svartur og silfur. Myndir af foreldrum og hvolpum eru hér.
 |
Hvolparnir fá að kynnast öllum hliðum lífsins og eru misjafnlega áhugasamir um það sem á vegi þeirra verður, eins og sjá má á þessari mynd. |
Alþjóðleg vorsýning HRFÍ 2009
Dómari Seamus Oates frá Írlandi.
Edo, sem heitir fullu nafni C.I.B. ISCH Scedir Edgar Allan Poe, var BOB (besti hundur tegundar) og fékk 4. alþjóðlega meistarastigið sitt. Hann er því orðinn íslenskur og alþjóðlegur meistari. Hann varð jafnframt í 4. sæti í tegundahópi 2, þar sem mikill fjöldi stórglæsilegra hunda keppti.
Mynd/Þorsteinn Kristinsson |
|
Edo hefur verið mjög sigursæll og er nú bæði íslenskur og alþjóðlegur meistari. |
Tæplega tveggja ára dóttir hans, Helguhlíðar Þorgerður Katrín var BOS (besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni) og fékk 3. íslenska meistarastigið sitt og hið fyrsta alþjóðlega.
 |
Mynd/Þorsteinn Kristinsson |
Helguhlíðar Þorgerður Katrín fékk 3. íslenska og 1. alþjóðlega stigið sitt. |
Helguhlíðar Mamma Mía var besti hvolpur tegundar, fékk heiðursverðlaun og mjög góða umsögn. Gotsystir hennar, Helguhlíðar Mirra fékk einnig mjög góða umsögn og var annar besti hvolpur tegundar.
Gríma frá Ólafsvöllum fékk frábæra dóma, einkunnina Excellent og meistaraefni. Hún var 3. besta tík tegundar.
 |
Gríma frá Ólafsvöllum var 3. besta tík tegundar, fékk frábæra dóma og meistaraefni. |
C.I.E. ISCH Vatnsenda Orka, enska pointer-tíkin okkar tók þátt í keppni ungra sýnenda með Sóleyju Rögnu Ragnarsdóttur 13 ára. Þær stóðu sig mjög vel og voru valdar í fjögurra manna úrslit í yngri aldursflokki.
 |
Orka hefur tvisvar sinnum tekið þátt í keppni ungra sýnenda með Sóleyju og í bæði skiptin hefur þeim gengið mjög vel. |
Allir hvolparnir
komnir með heimili
Snásahvolparnir hennar Díönu eru allir komnir
með heimili. Nýjar myndir koma inn fljótlega.

8
hvolpar fæddir
Díana átti 8 svart og silfur hvolpa á fimmtudaginn
17. júlí, 6 tíkur og 2 rakka, hvolparnir
eru allir heilbrigðir og dafna vel.
Meira undir hvolpar
Edo
orðin meistari!
Þá er sumarsýning HRFÍ 2008 að
baki og við hæst ánægð með útkomu
okkar hunda, Scedir Edgarallanpoe “Edo”
var valinn besti hundur tegundar og komst í 3. sæti
í tegundarhóp 2. Hann hlaut sitt 4. meistarastig
og það fyrsta eftir 24 mánaða aldur þannig
að nú er hægt að sækja um meistaratitilinn.
Helguhlíðar
Þorgerður Katrín var valin besta tík
tegundar og fékk sitt annað meistarastig, við
erum voða montin af stelpunni, til hamingju Brynja og
fjölskylda og takk fyrir að hugsa svona vel um Kötu,
Gríma
varð í öðru sæti og fékk
meistara efni. Gríma var líka í Ólafsvalla
ræktunarhópnum sem var valin besti ræktunarhópur
laugardagsins.
Sóley
Ragna Ragnarsdóttir var með Orku í ungum
sýnendum yngri flokki og stóðu þær
sig frábærlega og enduðu í þriðja
sæti.
Hvolpafréttir
Díana okkar (Isch. Díana frá Ólafsvöllum)
á von á hvolpum í kringum 17 júlí,
faðir hvolpana er Gabríel frá Ólafsvöllum.
Gabríel er með 2 meistarastig og varð annar besti
raki á síðustu sýningu.
Marssýning
HRFÍ

Á vorsýningu HRFÍ sem haldin var 1-2 mars
varð Edo besti rakki tegundar og hlaut bæði íslenskt
og alþjóðlegt meistarastig og vorum við
að sjálfsögðu mjög ánægð
með það. Við vorum líka afskaplega
stolt af Helguhíðar Þorgerði Katrínu
en “Kata” hlaut sitt fyrsta meistarastig á
sýningunni, aðeins 9 mánaða gömul
og óskum við eigendum hennar til hamingju með
árangurinn og þá sérstaklega henni
Sóleyju Rögnu Ragnarsdóttur sem keppti með
Kötu í ungum sýnendum og hafnaði í
4 sæti.
19. janúar
síðastliðinn fékk Gríma sitt
annað meistarastig, á deildarsýningu Schnauzerdeildar,
dómari var eljka Fon Zidar frá Slóveníu.
Orka
Meistari
Á
sýningu HRFÍ 6.-7. okt. var Orka í fyrsta
skipti sýnd í opnum flokki, og hlaut hún
bæði íslenskt og alþjóðlegt
meistarastig, en hana vantaði eitt íslenskt meistarastig
í opnum flokk til að verða íslenskur meistari.
Hún hafði fyrir þrjú ísl. meistarastig
og eitt alþjóðlegt, auk þess sem hún
er með mjög góðan árangur á
veiðiprófum (ma. 2 X 1. UF).
Október
sýningin

Schnauzeronum
gekk alveg frábærlega á sýningunni
þannig að þetta var mjög skemmtileg helgi
fyrir okkur.
Gríma
tól þátt í sinni fyrstu sýningu
og var valin besti hundur tegundar fékk ísl.
meistarastig (of ung fyrir CACIB) og varð í 3.
sæti í tegundarhóp 2.
Díana
var önnur besta tík og fékk CACIB (alþjóðlegt
meistarastig.)
Edo varð
annar besti rakki og fékk CACIB
Veiðiprófsfréttir
Helgina 29.-30. september tóku mæðgurnar Sparta
og Skotta þátt í veiðiprófi,
það gekk nánast ekkert upp hjá Skottu
þessa helgi (hún náði samt 2. einkunn)
en Sparta stóð sig frábærlega og hafnaði
í öðru sæti í keppnisflokk. Þetta
gerir að endanleg staða á stigalista fuglahundadeildar
er þannig að Skotta datt niður um eitt sæti
og endar í öðru sæti en Sparta klifraði
upp listann og endaði í þriðja sæti,
Trix hafnaði í áttunda sæti. Vatnsenda
Nóra er stigahæðst en hún er systir
Orku, en ári eldri.
Nýtt
folald
Hægt er að sjá mynd af nýja folaldinu
undir hestar .
Úrslit
sýningar
Á sumarsýningu Hundaræktarfélagsins
sem var haldinn 23.-24. júní var Scedir Edgar
Allan Poe "Edo" valin besti hundur tegundar og fékk
sitt annað meistarastig. Edo er pabbi hvolpanna hennar Díönnu.
Ný
tík
Á föstudaginn fjölgaði um einn
í fjölskylduni en þá losnaði Gríma
frá Ólafsvölum, nýja schnauzer tíkin
okkar úr einangrun, Gríma er 8 mánaða
yndisleg tík og kom mjög vel út úr
einangrun, glöð og mannelsk.
Hún er undan ITCH J EURO CH 2005 Hassanhill´s Scedir
Simply The Best og ITCH Scedir Ohararossella-NA (O´Hara).
Skotta stigahæðst
Skotta er í 1.sæti yfir stigahæðstu
standandi fuglaveiðihunda hjá VHD árið
2007, með 18 stig. Í 4 sæti er Trix með
11 stig. Í 5 sæti er Sparta með 10 stig. Svo
er Orka með 2 stig. Glæsilegur árangur.
Hvolpar
fæddir.
Það fæddust 7 hvolpar hjá Helguhlíðar
ræktun. 6 rakkar og 1 tík. Dverg Schnauzer svart/silfur
undan ISCH Díönu frá Ólafsvöllum
og BIS Scedir Edgar Allan Poe
Fuglahunda-
og Schnauzer sýningin

Hundunum okkar gekk vel á sýningunni 13 maí
sl. Orka fékk meistarastig og varð önnur besta
tík á eftir mömmu sinni Donnu. Sparta fékk
1.einkunn. Edo varð besti hundur tegundar með meistarastig
og gerði sér lítið fyrir og varð einnig
besti hundur sýningar!
Gestur
númer
|